Velkomin

Oddbjörg Ragnarsdóttir

Rithöfundur

Höfundur þriggja skáldsagna og tveggja barnabóka. Bækur hennar hafa hlotið góðar undirtektir hjá lesendum um land allt.

Oddbjörg Ragnarsdóttir

Bækur

Þrjár skáldsögur og tvær barnabækur

Eydís

Eydís

2015 • Listfengi

Sagan fjallar um unga konu á eitístímabilinu og segja má að hún sé að miklu leyti sögulega rétt, því nokkrir atburðir sem nefndir eru í sögunni áttu sér stað í raun og veru árið 1983. Þar er m.a. verið að vísa til tónleika með Grace Jones, mótmæli fyrir utan veðurstofuna vegna slæms veðurs o.fl. Persónur og leikendur eru hins vegar skáldskapur, sem og megnið af söguþræðinum.

Hvunndagsmorð

Hvunndagsmorð

2018 • Listfengi

Sakamálasaga sem fjallar um ósköp venjulegt fólk, sem lifir hefðbundnu lífi í hvunndeginum, sem þó hættir að vera venjulegt þegar það lendir í að verða aðilar og jafnvel gerendur glæpa, umlukið lygavef sem það sér ekki út úr. Kona hverfur í Kópavogi og lík af karlmanni finnst í húsbruna í Grafarvogi. Soffía og Hrafnkell stýra rannsókn mála.

Hefndararfur

Hefndararfur

2021 • Listfengi

Sjálfstætt framhald Hvunndagsmorða. Þemað er ágirnd, lygar, morð og ofbeldi, að ógleymdri öfundinni. Lík af konu finnst á skólalóð leikskóla í Kópavogi. Líkið reynist vera af eiturlyfjaneytanda sem er blóðmóðir lögreglukonunnar Soffíu og þarf hún í framhaldinu að eltast við skugga úr fortíð sinni.