Um mig
Ég er fædd 3. október 1959 í Reykjavík og ólst upp á Laugavegi 74. Ég er leikskólakennari að mennt og með BA gráðu í dönsku.
Ég gekk í Austurbæjarskóla og síðan í Kvennaskólann, þaðan útskrifaðist ég 1976. Eftir grunnskólagöngu vann ég einn vetur á Íslandi en síðan lá leiðin til Danmerkur, þar sem ég bjó og starfaði m.a. sem herbergisþerna á Hótel d'Angleterre og í matvælaverksmiðju.
Á Danmerkurárum byrjaði ég að skrifa. Árið 1983 kom ég heim til Íslands og ári seinna hóf ég nám við Fósturskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 1987. Ég eignaðist tvo drengi, 1986 og 1992.
Árið 2002 kom smásaga mín „Hættur" út í smásagnasafninu „Hver með sínu nefi" hjá Þyrnirós. Ég hélt síðan áfram að mennta mig og lauk B.ed gráðu í leikskólafræðum 2009 og BA gráðu í dönsku 2012, báðar frá Háskóla Íslands.
Í háskólanum kviknaði aftur þörfin til að skrifa. Ég sótti námskeið í ritlist hjá Önnu Heiðu Pálsdóttur í skapandi skrifum og námskeið hjá Stefáni Mána í glæpasagnaskrifum. Þessi námskeið veittu mér innblástur sem varð til þess að ég hélt áfram að skrifa.
Ritaskrá
- Eydís (2015) — Skáldsaga
- Hvunndagsmorð (2018) — Skáldsaga
- Hefndararfur (2021) — Skáldsaga
- Dísa fer í sveitina (2025) — Barnabók • Myndskreyting: Harpa Stefanía Róbertsdóttir
- Amma, hvert fara fuglarnir á nóttunni? (2023) — Barnabók • Myndskreyting: Harpa Stefanía Róbertsdóttir
Viltu senda fyrirspurn eða hafa samband?
Hafa samband